Fyrirlestur um meistaraprófsverkefni 3. júní

31.5.2010 Alvin Remoroza, nemandi Orkuskólans REYST, heldur fyrirlestur um meistaraprófsverkefni sitt “Calcite mineral scaling potentials of high-temperature geothermal wells” í stofu 131 í Öskju, HÍ, 3. júní og hefst hann kl. 15:00.

Alvin mun fjalla um rannsóknir sínar á borholuvökva í borholum á Hellisheiði og á Mahanagdong og Pataan jarðhitasvæðunum á Filippseyjum  sem fjalla um  breytingar á kalkmettun borholuvökva við suðu. Nefnd svæði eru í breytiegu jarðfræðilegu umhverfi. Fyrir háavermisholur er mat á kalkmettun miðað við tiltekið líkan fyrir útreikninga á efnainnihaldi djúpvatns sem byggir á niðurstöðum efnahitamæla.

Leiðbeinandi Alvins er Stefán Arnórsson en prófdómari Ingvi Gunnarsson.

Partners

OR ? HI