Sjálfbær nýting orkulinda er undirstaða hagvaxtar og velferðar til framtíðar. Til þess að stuðla að rannsóknum og aukinni menntun á sviði sjálfbærrar orku hafa Orkuveita Reykjavíkur, Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands sett á stofn þverfaglegan skóla fyrir verkfræðinga, jarðvísindamenn auk fólks með menntun á sviði annarra raunvísinda- eða viðskipta. Markmiðið er að mennta leiðandi sérfræðinga á sviði stjórnunar, hönnunar og rannsókna um sjálfbæra orku. Skólinn býður upp á alþjóðlegt framhaldsnám á háskólastigi sem byggir á þremur stoðum: náttúru, tækni og markaði.
31.5.2010

Fyrirlestur um meistaraprófsverkefni 3. júní

Alvin Remoroza, nemandi Orkuskólans REYST, heldur fyrirlestur um meistaraprófsverkefni sitt í stofu 131 í Öskju, HÍ, 3. júní og hefst hann kl. 15:00.
16.3.2010

Umsóknarfrestur í REYST 2010 er til 6. apríl

Umsóknarfrestur í REYST 2010 er til 6. apríl
8.7.2009

Skólasetning Orkuskólans REYST 2009

Skólasetning Orkuskólans REYST verður haldin þriðjudaginn 4. ágúst að Bæjarhálsi 1 kl. 10-11.
Starfsvettvangur REYST er rannsóknir og rannsóknatengt framhaldsnám og bera Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík faglega ábyrgð á náminu. Skólinn er ætlaður fólki með BS gráðu í verkfræði og öðrum raunvísindum og viðskiptum sem hyggur á framhaldsnám á sviði sjálfbærrar orku.

Partners

OR ? HI